Wednesday, June 25, 2008

Allir á laugardalsvöll fimmtudag kl. 16.30.

Ísland - Grikkland.

Sunday, June 22, 2008

Stolt móðir

Ég telst ábyggilega nokkuð sjúk móðir. Ég er alsæl með að vera búin að kenna Kötlu að éta úr sér horið. Mér finnst það nefninlega skárra en að þurfa sjálf að þurrka það.

Tuesday, June 17, 2008

17. júní á pallinum

Mikið reynir á þolinmæði barnaforeldra á 17. júní. Ég meina hver hefur gaman af þessu rugli? Klukkutíma bið eftir hoppukastala og blaðra á þúsund kall? Svo berst maður með olnboganum í gegnum troðninginn og gasblaðran lemur mann í andlitið á meðan kerran klippir á hásinar fólksins fyrir framan.
Við flúðum fljótlega heim á pall, grilluðum pulsur og sulluðum með dúkkurnar í bala.




Tuesday, June 10, 2008

Osló

Við Katla skruppum í heimsókn til vina okkar í Osló um helgina, sleiktum sól og skemmtum okkur. Ég fór í brúðkaup og Katla kynntist Auroru Hönnudóttur. Það var svakaleg hitabylgja fyrstu tvo dagana og við urðum að slá á helsta hitamókið með því að hanga á ströndinni. Katla var alsæl með þetta og var sérstaklega hrifin af norskum skógi.









Sunday, May 11, 2008

Stelpurnar okkar



Thursday, April 17, 2008



Wednesday, March 26, 2008

Hún sofnaði með kjuðana í lúkunum.